Menntað fólk án starfsreynslu

Skortir þig starfsreynslu á þínu sviði?
Þjónustan er veitt um land allt og er fyrir alla sem skortir starfsreynslu. Það getur reynst erfitt að selja eigið ágæti. Við vitum örugglega hvað þú ert að ganga í gegnum, ekki vera feimin/n við að hafa samband.
Þegar þú hefur lokið við að senda okkur ferilskrá og gengið frá greiðslu förum við beint í að finna fyrirtæki eða atvinnurekanda sem er tilbúinn til að ráða þig til reynslu. Við getum að sjálfsögðu ekki ábyrgst að við finnum starf fyrir þig en þú getur verið viss um að við gerum okkar allra besta!
Hvernig virkar þetta?
1. Skráning: Þú sendir okkur ferilskrá með öllum helstu upplýsingum um menntun - við bjöllum í þig (ef vill) og spjöllum um hvað það er sem þú helst ert að leita að.
2. Bið: Þú ferð aftast í röðina, við tökum ekki afstöðu til hæfi umsækjenda heldur fá allir sitt tækifæri þegar röðin er komin að þeim - það skiptir máli að skrá sig sem fyrst! (Á þessu stigi erum við á fullu að reyna að finna atvinnurekanda sem er tilbúinn að gefa þér tækifæri.)
Dæmi: Tveir landfræðingar skrá sig hjá okkur og við finnum eitt starf til reynslu - sá sem sem var fyrri til að skrá sig fær tækifærið.
3. Starf: Við finnum (vonandi) vinnuveitanda sem er tilbúinn til að gefa þér tækifæri og þú hefur störf. Launakjör eru ykkur á milli.
4. Starfsreynsla: Að þeim tíma loknum hefur þú öðlast reynslu á þínu sviði, hefur aukið sjálfstraust og veist vonandi frekar eftir hverju þú sækist! -hver veit, kannski þú fáir áframhaldandi starf á vinnustaðnum.
“When one door closes, another opens; but we often look so long and so regretfully upon the closed door that we do not see the one which has opened for us.” – Alexander Graham Bell
