Menntað fólk án starfsreynslu

Hafðu samband
-Símatímar alla virka daga fram á kvöld-
Sendu okkur e-mail, við finnum símatíma og hringjum í þig
Þjónustan
Lítil sem engin starfsreynsla?
1. Skráning: Þú sendir okkur ferilskrá með öllum helstu upplýsingum um menntun - við bjöllum í þig (ef þess er óskað) og við spjöllum um hvað það er sem þú ert helst að leita að.
2. Bið: Þú ferð aftast í röðina, við tökum ekki afstöðu til hæfi umsækjenda heldur fá allir sitt tækifæri þegar röðin er komin að þeim - það skiptir máli að skrá sig sem fyrst! (Á þessu stigi erum við á fullu að reyna að finna atvinnurekanda sem er tilbúinn að gefa þér tækifæri.)
3. Starf: Við finnum (vonandi) vinnuveitanda sem er tilbúinn til að gefa þér tækifæri og þú hefur störf. Launakjör eru ykkur á milli.
4. Starfsreynsla: Að þeim tíma loknum hefur þú öðlast reynslu á þínu sviði, hefur aukið sjálfstraust, stærra tengslanet og veist vonandi frekar eftir hverju þú sækist! - hver veit, kannski þú fáir áframhaldandi starf á vinnustaðnum.
Hugmyndin
Starfsreynsla var stofnuð af tveimur ungum nýútskrifuðum konum sem áttuðu sig fljótlega á að góð menntun nægir ekki ein og sér til að fá sitt fyrsta starf eftir útskrift. Í megin þorra starfsauglýsinga er farið fram á starfsreynslu. Hvernig öðlast maður þessa starfsreynslu? Þú ert komin/n á réttan stað!
Starfsreynsla er hugsuð sem fyrsta skrefið í átt að starfsframa. Við finnum vinnuveitanda sem ræður þig tímabundið til starfa, jafnvel í ákveðið verkefni eða tímabundið hlutastarf. Í framhaldinu er það ósk okkar að þú eigir auðveldara með að fá tækifæri á atvinnumarkaði.

